Persónuverndarstefna babel.is
Gildir frá 14. nóvember 2026
1. Um stefnuna
Þessi persónuverndarstefna lýsir því hvernig Andvari („við“, „okkur“) vinnur persónuupplýsingar í tengslum við þýðingarþjónustuna babel.is („þjónustan“). Stefnan á við um:
- notendur þjónustunnar,
- þá sem reyna að skrá sig inn án þess að hafa aðgang, og
- eftir því sem við á, einstaklinga sem fjallað er um í skjölum sem send eru til þýðingar.
Við vinnum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (almennu persónuverndarreglugerðina, hér eftir „reglugerðin“).
2. Hver ber ábyrgð á vinnslunni?
Andvari, sjálfseignarstofnun, kt. 670625-0950, Laugavegi 182, 105 Reykjavík.
Netfang vegna persónuverndar: tryggvi@andvari.is
Við höfum ekki skipað persónuverndarfulltrúa en svörum öllum fyrirspurnum um persónuvernd á netfanginu hér að ofan.
3. Hlutverk okkar: ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili
Þjónustan er eingöngu ætluð starfsfólki skóla, sveitarfélaga og annarra stofnana sem við höfum opnað aðgang fyrir („stofnun“). Hlutverk okkar fer eftir því hvaða upplýsingar eiga í hlut:
| Upplýsingar | Hlutverk okkar |
|---|---|
| Upplýsingar um notendur: netfang, nafn, innskráningar, atvikaskrár og öryggisgögn | Ábyrgðaraðili |
| Efni skjala sem send eru til þýðingar og þýðingarnar sjálfar | Vinnsluaðili fyrir hönd þeirrar stofnunar sem notandinn starfar hjá |
Þegar starfsmaður sendir inn skjal er stofnunin ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga í skjalinu. Í tilviki grunnskóla og leikskóla er það að jafnaði það sveitarfélag eða annar aðili sem rekur skólann. Við vinnum efnið eingöngu samkvæmt fyrirmælum stofnunarinnar og í þeim tilgangi einum að þýða það. Um þá vinnslu gildir vinnslusamningur milli okkar og stofnunarinnar hafi hann verið gerður, en annars vinnsluskilmálar í 7. gr. notendaskilmála. Stofnunum stendur til boða að gera við okkur undirritaðan vinnslusamning, og sveitarfélög geta gert hann fyrir hönd allra þeirra skóla sem þau reka.
Ert þú t.d. foreldri eða nemandi og vilt vita hvort eða hvernig upplýsingar um þig hafa verið unnar í skjali? Snúðu þér þá til viðkomandi skóla eða sveitarfélags. Við aðstoðum stofnanir við að svara slíkum beiðnum.
4. Hvaða upplýsingar vinnum við og í hvaða tilgangi?
4.1 Aðgangur og innskráning
Innskráning fer fram með sex stafa kóða sem sendur er á netfang notanda með tölvupóstþjónustu Microsoft. Lykilorð eru ekki notuð. Við vinnum:
- netfang, sem er jafnframt notendanafn,
- nafn, ef notandi kýs að skrá það,
- innskráningarkóða, sem gildir í 5 mínútur, og
- upplýsingar um innskráða setu: auðkenni setu og hvenær hún var stofnuð og síðast notuð.
IP-tala er notuð til að takmarka fjölda innskráningartilrauna. Í því skyni er hún höfð í vinnsluminni vefþjóns í allt að eina mínútu og síðan eytt. Hvorki IP-tala né upplýsingar um vafra eru vistaðar með netfangi notanda eða setu hans.
Tilgangur: að staðfesta að netfang eða lén þess sé á lista yfir stofnanir sem hafa aðgang, skrá notanda inn og verja aðganginn gegn misnotkun.
Heimild: lögmætir hagsmunir okkar og stofnana sem nota þjónustuna af því að veita starfsfólki þeirra öruggan aðgang (6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 og f-liður 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar). Ef samningur er við stofnunina byggist vinnslan einnig á honum.
4.2 Skjöl og þýðingar
Skjal sem notandi sendir inn er vistað tímabundið í lokaðri gagnageymslu hjá Microsoft í Svíþjóð og þýtt með vélþýðingarþjónustu Microsoft í gagnaveri í Frakklandi eða Hollandi. Þýðingin er vistuð á sama hátt þar til henni er eytt sjálfkrafa (sjá 6. kafla). Efni skjala er aldrei vistað í gagnagrunni okkar.
Skjalið og þýðingin eru vistuð undir hlutlausu heiti í sérstakri möppu fyrir hvern notanda og hverja beiðni. Aðeins notandinn sem sendi skjalið inn getur sótt þýðinguna.
Skjöl geta innihaldið persónuupplýsingar um aðra, t.d. nemendur og foreldra. Um þær gildir eftirfarandi:
- Við lesum ekki efni skjala og notum það ekki í öðrum tilgangi en til að þýða það.
- Þegar PDF-skjal er sent inn les vefþjónn okkar það í vinnsluminni til þess eins að telja blaðsíður. Efnið er ekki vistað þar.
- Samkvæmt skilmálum Microsoft er efni sem sent er til þýðingar ekki notað til að þjálfa líkön, og því er eytt að vinnslu lokinni.
Heimild: Vinnslan fer fram fyrir hönd stofnunarinnar, sem ber ábyrgð á að heimild sé fyrir henni (sjá 3. kafla).
4.3 Upplýsingar um þýðingarbeiðnir
Á meðan þýðing er í vinnslu og hægt er að sækja hana vistum við um hana:
- heiti skjals,
- stærð og tegund skjals,
- markmál,
- stöðu og tímasetningar beiðninnar,
- blaðsíðufjölda (PDF) og fjölda þýddra stafa, og
- villuboð, ef einhver eru.
Þessum upplýsingum er eytt ásamt skjalinu og þýðingunni, 15 mínútum eftir innsendingu. Við geymum enga sögu um hvaða skjöl notandi hefur þýtt eða hversu mörg. Notkun er eingöngu talin í samantekt sem ekki verður rakin til einstaklinga (sjá 4.5).
Tilgangur: að veita þjónustuna og greina og leysa villur á meðan þýðing er í vinnslu.
Heimild: lögmætir hagsmunir (f-liður 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar).
Skráarheiti geta innihaldið persónuupplýsingar. Við mælum því með að nöfn einstaklinga komi ekki fram í skráarheitum.
4.4 Atvikaskrár og öryggi
Kerfin skrá atburði, svo sem:
- innskráningar og sendingu innskráningarkóða,
- innskráningartilraunir sem er hafnað, og
- framvindu og villur í þýðingum.
Í atvikaskrám geta komið fram auðkenni þýðingarbeiðna, IP-tala og vefslóðir. Hvorki netföng, notandaauðkenni né skráarheiti eru skráð. Eingöngu lén netfangs er skráð, svo sjá megi frá hvaða stofnun atburður kemur. IP-tala er því ekki tengd netfangi eða notanda í atvikaskrám.
Tilgangur: rekstraröryggi, varnir gegn misnotkun og villugreining.
Heimild: lögmætir hagsmunir (f-liður 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar).
4.5 Notkunartölfræði
Til að mæla notkun skráir vefþjónn okkar talningar hjá hýsingaraðila okkar, Vercel, t.d.:
- fjölda þýddra skjala og blaðsíðna,
- markmál og skráartegund, og
- á hvaða stigi villur koma upp.
Talningarnar innihalda hvorki nöfn, netföng, skráarheiti né efni skjala. Þær eru sendar án IP-tölu, vafrakaka og upplýsinga um vafra notanda og verða því ekki raktar til einstaklinga. Við skoðum þær eingöngu í samantekt.
Engin mæling fer fram í vafra notanda og ekkert er vistað í tæki hans vegna tölfræðinnar.
Heimild: lögmætir hagsmunir af því að skilja notkun og bæta þjónustuna (6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 og f-liður 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar).
4.6 Samskipti
Ef þú hefur samband við okkur notum við upplýsingarnar sem þú veitir til að svara erindinu.
5. Hvaðan koma upplýsingarnar og er skylt að veita þær?
- Frá notanda: netfang, nafn og skjöl.
- Frá stofnunum: lén eða netföng starfsfólks sem á að fá aðgang.
- Sjálfkrafa við notkun: IP-tala, upplýsingar um vafra og atvikaskrár.
Netfang er nauðsynlegt til að stofna aðgang og skrá sig inn. Án þess er ekki hægt að nota þjónustuna. Skráning nafns er valfrjáls.
Engar ákvarðanir sem varða notendur eru teknar sjálfvirkt, þ.m.t. með gerð persónusniðs.
6. Hversu lengi geymum við upplýsingarnar?
| Upplýsingar | Varðveislutími |
|---|---|
| Innsent skjal og þýðing | Hægt er að sækja þýðingu í 15 mínútur frá innsendingu. Þá er skjali og þýðingu eytt sjálfkrafa. Eydd skjöl eru ekki endurheimtanleg. |
| Innskráningarkóði | 5 mínútur, eða þar til hann er notaður |
| Innskráð seta | 90 dagar frá síðustu notkun, eða þar til notandi skráir sig út. Útrunnum setum er eytt. |
| Upplýsingar um þýðingarbeiðnir | Eytt ásamt skjali og þýðingu, 15 mínútum eftir innsendingu. Engin saga er geymd. |
| Notandaaðgangur (netfang, nafn) | Á meðan aðgangur er virkur. Notandi getur sjálfur eytt aðgangi sínum í þjónustunni. Aðgangi er einnig eytt að beiðni stofnunar, þegar netfang eða lén er tekið af lista yfir stofnanir með aðgang, eða eftir 12 mánaða óvirkni. |
| Atvikaskrár | Allt að 1 sólarhring |
| Tölvupóstur með innskráningarkóða | Sendur með tölvupóstþjónustu Microsoft. Við vistum ekki afrit af honum. |
| Afrit gagnagrunns | 7 dagar. Afrit ná yfir allan gagnagrunninn, þ.m.t. aðgangsupplýsingar og upplýsingar um þýðingarbeiðnir, en aldrei efni skjala eða þýðinga. |
| Notkunartölfræði | Eingöngu samantekin gögn, varðveitt í allt að 24 mánuði |
Við kunnum að varðveita upplýsingar lengur ef lög krefjast þess eða ef þeirra er þörf til að verja réttarkröfur.
7. Hverjir fá aðgang að upplýsingunum?
Við seljum aldrei persónuupplýsingar.
Eftirfarandi vinnsluaðilar vinna upplýsingar fyrir okkar hönd, samkvæmt skriflegum vinnslusamningum:
| Vinnsluaðili | Hlutverk | Staðsetning vinnslu |
|---|---|---|
| Vercel Inc. | Hýsing vefsins, atvikaskrár og notkunartölfræði | Þýskaland (ESB) |
| Microsoft Ireland Operations Ltd. | Gagnagrunnur, tímabundin geymsla skjala, vélþýðing og sending tölvupósts með innskráningarkóðum | Gagnagrunnur: Írland. Geymsla skjala: Svíþjóð. Vélþýðing: Frakkland eða Holland. Tölvupóstur: Evrópa. (ESB) |
- Innan Andvara hafa einungis þeir sem sjá um rekstur þjónustunnar aðgang að kerfunum, og aðeins að því marki sem þörf krefur vegna reksturs og öryggis.
- Við afhendum upplýsingar lögreglu eða öðrum stjórnvöldum aðeins ef skylt er að lögum.
8. Miðlun út fyrir Evrópska efnahagssvæðið
Efni skjala er eingöngu unnið innan Evrópusambandsins. Vercel Inc., sem hýsir vefinn, er bandarískt félag og upplýsingar um notendur geta því borist til Bandaríkjanna (sjá 7. kafla). Samkvæmt skilmálum Microsoft geta gögn tölvupóstþjónustunnar einnig farið um eða verið unnin utan Evrópu við afgreiðslu. Slík miðlun byggist á 16. gr. laga nr. 90/2018 og:
- ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd samkvæmt rammasamningi ESB og Bandaríkjanna um persónuvernd. Ákvörðunin gildir hér á landi samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 169/2024, og
- stöðluðum samningsákvæðum sem framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt.
Þú getur óskað eftir nánari upplýsingum um þessar ráðstafanir með því að hafa samband við okkur.
9. Öryggi
Við gerum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar, þar á meðal:
- Öll samskipti eru dulkóðuð. Gögn eru dulkóðuð í geymslu.
- Skjöl eru í lokuðum geymslum. Aðgangur að þeim fer eingöngu um tímabundnar, undirritaðar slóðir sem gilda í nokkrar mínútur.
- Aðeins sá notandi sem sendi skjal inn getur sótt þýðingu þess.
- Innskráning fer fram með einnota kóða. Aðgangur er takmarkaður við samþykktar stofnanir.
- Aðgangur starfsfólks okkar að kerfum er takmarkaður.
Ef öryggisbrestur verður sem varðar persónuupplýsingar um notendur tilkynnum við hann til Persónuverndar innan 72 klukkustunda þegar það á við, sbr. 27. gr. laga nr. 90/2018. Varði bresturinn efni skjala tilkynnum við hlutaðeigandi stofnun án ótilhlýðilegrar tafar og eigi síðar en 48 klukkustundum eftir að okkur verður kunnugt um hann, svo að hún geti sinnt skyldum sínum. Einstaklingar eru látnir vita eftir því sem lög krefjast.
10. Réttindi þín
Samkvæmt 17. og 20.–22. gr. laga nr. 90/2018 og III. kafla reglugerðarinnar átt þú rétt á:
- aðgangi að þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig,
- leiðréttingu rangra upplýsinga,
- eyðingu upplýsinga, t.d. að notandaaðgangi þínum sé eytt,
- takmörkun vinnslu,
- að andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum, og
- flutningi eigin gagna þegar það á við.
Til að nýta þessi réttindi skaltu senda tölvupóst á tryggvi@andvari.is. Við svörum innan eins mánaðar.
Varða beiðnir efni skjala sem stofnun hefur sent til þýðingar? Þá áframsendum við þær til viðkomandi stofnunar, sem er ábyrgðaraðili að þeirri vinnslu.
11. Vafrakökur og geymsla í vafra
Við notum eingöngu tæknilega geymslu í vafra sem þarf til að veita þjónustuna eða sem notandi biður sjálfur um. Slík geymsla er heimil samkvæmt 2. mgr. 88. gr. laga nr. 70/2022 um fjarskipti, enda sé notanda kunnugt um hana. Hér upplýsum við því um hana.
Við notum engar auglýsinga- eða rakningarkökur.
| Heiti | Tegund | Tilgangur | Gildistími |
|---|---|---|---|
| `__Secure-better-auth.session_token` | Vafrakaka (HttpOnly) | Heldur notanda innskráðum | 90 dagar frá síðustu notkun, eða til útskráningar |
| `better-auth.message` | Staðbundin geymsla í vafra | Samstillir innskráningu milli flipa. Inniheldur engar persónuupplýsingar. | Þar til henni er eytt úr vafra |
| `theme` | Staðbundin geymsla í vafra | Man val notanda á ljósu eða dökku útliti, aðeins ef notandi velur það | Þar til henni er eytt úr vafra |
12. Börn
Þjónustan er ætluð starfsfólki stofnana og ekki nemendum eða börnum.
Skjöl sem starfsfólk sendir inn geta þó innihaldið upplýsingar um börn. Stofnanir bera ábyrgð á að gæta meðalhófs í þeim efnum. Við hvetjum notendur til að senda ekki inn meiri persónuupplýsingar en nauðsyn krefur. Kennitölur og upplýsingar um heilsu eða aðrar viðkvæmar persónuupplýsingar ættu t.d. ekki að koma fram nema brýna nauðsyn beri til.
13. Kvörtun til Persónuverndar
Ef þú telur að vinnsla okkar á persónuupplýsingum brjóti gegn lögum getur þú sent kvörtun til Persónuverndar:
- Persónuvernd, Laugavegi 166, 4. hæð, 105 Reykjavík
- Sími: 510 9600
- Netfang: postur@personuvernd.is
- Vefur: www.personuvernd.is
Við hvetjum þig þó til að hafa fyrst samband við okkur svo að við getum reynt að leysa málið.
14. Breytingar á stefnunni
Við kunnum að breyta stefnunni, t.d. vegna breytinga á þjónustunni eða lögum. Gildandi útgáfa er ávallt aðgengileg á babel.is. Verulegar breytingar tilkynnum við notendum í þjónustunni.