← babel.is

Notendaskilmálar babel.is

Gildir frá 14. nóvember 2026

1. Almennt

1.1. Skilmálar þessir gilda um notkun á þýðingarþjónustunni babel.is („þjónustan“). Andvari, sjálfseignarstofnun, kt. 670625-0950, Laugavegi 182, 105 Reykjavík („við“, „okkur“, „Andvari“) rekur þjónustuna.

1.2. Áður en þú notar þjónustuna í fyrsta sinn þarftu að samþykkja skilmálana. Þú samþykkir þá fyrir þína hönd. Við skráum hvenær þú samþykktir þá.

1.3. Ef sérstakur samningur hefur verið gerður milli Andvara og stofnunar, eða sveitarfélags sem rekur hana, gengur hann framar þessum skilmálum að því marki sem þeir stangast á.

2. Skilgreiningar

  • Stofnun: Vinnustaður notanda, t.d. skóli eða sveitarfélag.
  • Notandi: Starfsmaður stofnunar sem við höfum opnað aðgang fyrir og skráir sig inn í þjónustuna með vinnunetfangi.
  • Efni: Skjöl sem notandi sendir inn til þýðingar.
  • Þýðing: Skjal sem verður til við vélþýðingu efnis.

3. Aðgangur

3.1. Þjónustan er eingöngu ætluð starfsfólki stofnana sem við höfum opnað aðgang fyrir, t.d. eftir léni vinnunetfangs. Hún er ekki ætluð nemendum eða börnum.

3.2. Notandi skráir sig inn með vinnunetfangi sínu og einnota kóða sem sendur er á það netfang. Aðgangurinn er persónulegur. Notanda er óheimilt að:

  • veita öðrum aðgang að honum, eða
  • framsenda innskráningarkóða.

3.3. Notandi skal láta okkur vita án tafar ef hann telur að óviðkomandi hafi fengið aðgang að netfangi hans eða notandaaðgangi.

3.4. Aðgangur notanda fellur niður þegar hann hættir störfum hjá stofnuninni eða stofnunin hættir að nota þjónustuna. Stofnun getur hvenær sem er óskað eftir því að aðgangi starfsmanns verði lokað.

4. Þjónustan

4.1. Þjónustan gerir notendum kleift að senda inn skjöl og fá þau vélþýdd á eitt af þeim tungumálum sem í boði eru hverju sinni. Þýðingin fer fram með vélþýðingarþjónustu Microsoft.

4.2. Í boði eru þær skráartegundir, hámarksstærð skjala (nú 30 MB) og tungumál sem tilgreind eru í þjónustunni hverju sinni.

4.3. Við kunnum að breyta, bæta við eða fella niður eiginleika þjónustunnar, svo sem tungumál og skráartegundir.

4.4. Þjónustan er veitt án endurgjalds.

5. Vélþýðingar

5.1. Þýðingar eru unnar sjálfvirkt með vélþýðingu sem byggir á gervigreind, án aðkomu þýðanda. Þýðingar eru vélrænar og geta innihaldið villur. Þær geta meðal annars:

  • verið ónákvæmar eða rangar,
  • sleppt efni, eða
  • breytt framsetningu og uppsetningu skjals.

5.2. Þýðingar eru ekki löggiltar þýðingar og koma ekki í stað þýðinga skjalaþýðanda eða túlks þar sem slíkra er krafist.

5.3. Andvari ber ekki ábyrgð á réttmæti, nákvæmni eða notagildi þýðinga, né á afleiðingum þess að þær eru notaðar.

6. Efni notenda og notkunarreglur

6.1. Notandi ber, gagnvart Andvara, einn ábyrgð á því efni sem hann sendir inn til þýðingar og á notkun þýðinga. Í því felst m.a. að hann ber ábyrgð á að:

  • hann hafi heimild til að láta þýða efnið, þ.m.t. samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972 og öðrum lögum um hugverkaréttindi,
  • efnið og notkun þýðingarinnar brjóti ekki gegn réttindum annarra, svo sem höfundarétti, friðhelgi einkalífs eða trúnaðarskyldum, og
  • notkunin samrýmist lögum og reglum stofnunarinnar.

6.2. Notandi skal gæta meðalhófs og ekki senda inn meiri persónuupplýsingar en nauðsynlegt er til að ná tilgangi þýðingarinnar. Kennitölur, upplýsingar um heilsu og aðrar viðkvæmar persónuupplýsingar ættu ekki að koma fram í efni nema brýna nauðsyn beri til. Nöfn einstaklinga ættu ekki að koma fram í skráarheitum.

6.3. Óheimilt er að nota þjónustuna til að:

  • senda inn spilliforrit eða skrár sem ætlað er að valda skaða,
  • reyna að komast fram hjá aðgangsstýringum eða öryggisráðstöfunum, eða að fá aðgang að gögnum annarra notenda, og
  • nota þjónustuna með sjálfvirkum hætti eða í því magni að það raski þjónustunni fyrir öðrum notendum.

6.4. Við getum lokað aðgangi notanda tímabundið eða varanlega ef hann brýtur gegn skilmálum þessum. Það sama gildir ef nauðsynlegt er vegna öryggis þjónustunnar.

6.5. Andvari fer hvorki yfir né ritstýrir efni sem notendur senda inn eða þýðingum þess og ber enga ábyrgð á því. Geri þriðji aðili kröfu á hendur Andvara vegna efnis sem notandi sendi inn eða vegna notkunar þýðingar ber notandi ábyrgð á kröfunni gagnvart Andvara, nema hún verði rakin til brots Andvara á skilmálum þessum.

7. Persónuvernd og vinnsla fyrir hönd stofnana

7.1. Um vinnslu persónuupplýsinga um notendur gildir persónuverndarstefna babel.is.

7.2. Stofnunin er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga sem fram koma í efni. Það sama gildir um þann sem rekur hana, svo sem sveitarfélag. Andvari er vinnsluaðili og vinnur efnið eingöngu:

  • fyrir hönd stofnunarinnar,
  • samkvæmt fyrirmælum hennar, sem felast í því að notandi sendir skjal til þýðingar, og
  • í þeim tilgangi einum að þýða það.

Vinnslan felst í því að efni er geymt tímabundið, þýtt með vélþýðingu og þýðingin afhent notandanum. Efni getur innihaldið hvers kyns persónuupplýsingar, þ.m.t. viðkvæmar upplýsingar og upplýsingar um börn, um þá sem nefndir eru í skjölum, t.d. nemendur, foreldra og starfsfólk. Efni er geymt í 15 mínútur, sbr. 8. gr.

Skuldbindingar Andvara í þessari grein gilda gagnvart stofnuninni hvort sem hún hefur gert sérstakan samning við Andvara eða ekki.

7.3. Í hlutverki vinnsluaðila skuldbindur Andvari sig til að:

  • (a) nota efni ekki í öðrum tilgangi og hvorki afhenda það né veita öðrum aðgang að því, nema undirvinnsluaðilum samkvæmt d-lið eða þegar lög krefjast. Hvorki Andvari né undirvinnsluaðilar nota efni í eigin þágu, svo sem til þjálfunar gervigreindarlíkana, greininga eða markaðssetningar,
  • (b) tryggja að þeir sem hafa aðgang að efni séu bundnir trúnaði,
  • (c) viðhafa viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir,
  • (d) nota eingöngu þá undirvinnsluaðila sem tilgreindir eru í persónuverndarstefnu og binda þá sömu skyldum með skriflegum samningi. Breytingar á þeim eru birtar í persónuverndarstefnu a.m.k. 30 dögum áður en þær taka gildi, svo að stofnanir geti andmælt. Stofnanir sem gert hafa vinnslusamning fá tilkynningu beint,
  • (e) aðstoða stofnunina við að sinna beiðnum skráðra einstaklinga og skyldum hennar vegna öryggis, öryggisbresta og mats á áhrifum á persónuvernd,
  • (f) tilkynna stofnuninni um öryggisbrest sem varðar efni án ótilhlýðilegrar tafar og eigi síðar en 48 klukkustundum eftir að Andvara verður kunnugt um hann,
  • (g) eyða efni og þýðingum sjálfkrafa samkvæmt 8. gr.,
  • (h) veita stofnuninni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að sýna fram á að þessar skyldur séu uppfylltar og gera henni kleift að gera úttektir, þ.m.t. skoðanir, og
  • (i) láta stofnunina vita án tafar ef Andvari telur fyrirmæli hennar brjóta gegn lögum.

7.4. Andvari aðstoðar stofnunina við mat á áhrifum á persónuvernd, sbr. 29. gr. laga nr. 90/2018, ef hún óskar þess.

7.5. Stofnunum stendur til boða að gera við Andvara sérstakan, undirritaðan vinnslusamning. Sveitarfélag getur gert slíkan samning fyrir hönd allra þeirra skóla og stofnana sem það rekur. Samningnum fylgir fastur viðauki um öryggisráðstafanir og listi yfir undirvinnsluaðila. Beiðni þar um má senda á tryggvi@andvari.is. Slíkur samningur gengur framar þessari grein.

8. Geymsla og eyðing skjala

8.1. Innsend skjöl og þýðingar eru aðeins geymd tímabundið. Hægt er að sækja þýðingu í 15 mínútur frá innsendingu. Þá er skjali og þýðingu eytt sjálfkrafa. Eydd skjöl eru ekki endurheimtanleg.

8.2. Notandi skal hlaða niður og vista þýðingu hjá sér að vinnslu lokinni. Eftir að skjölum hefur verið eytt er ekki hægt að endurheimta þau.

8.3. Þjónustan er ekki skjalavistunarkerfi. Stofnun ber sjálf ábyrgð á varðveislu og skráningu gagna sem henni ber að varðveita samkvæmt lögum, þ.m.t. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Sjálfvirk eyðing samkvæmt 8.1 nær eingöngu til þeirra afrita sem vistuð eru í þjónustunni, ekki til frumskjala stofnunarinnar.

9. Hugverkaréttindi

9.1. Notandi og stofnun halda öllum réttindum sínum að efni og þýðingum. Andvari öðlast engin réttindi að þeim. Andvari hefur einungis heimild til að vinna efnið að því marki sem nauðsynlegt er til að veita þjónustuna.

9.2. Andvari á öll réttindi að þjónustunni, hugbúnaði hennar, útliti og vörumerkjum.

10. Tiltækileiki og varanleiki þjónustunnar

10.1. Þjónustan er veitt án endurgjalds, eins og hún er hverju sinni og eftir því sem hún er tiltæk. Andvari ábyrgist ekki að þjónustan sé aðgengileg á hverjum tíma, að hún virki án truflana eða villna, né að hún henti tilteknum tilgangi.

10.2. Andvari veitir engin þjónustustig og skuldbindur sig hvorki til tiltekins uppitíma, viðbragðstíma né afkastagetu. Þjónustan getur legið niðri eða verið rofin hvenær sem er og án fyrirvara, t.d. vegna viðhalds, uppfærslna, öryggis eða bilana hjá undirvinnsluaðilum, svo sem Microsoft eða Vercel.

10.3. Andvari skuldbindur sig ekki til að veita þjónustuna í tiltekinn tíma. Við getum breytt þjónustunni, takmarkað hana eða hætt að veita hana, að hluta eða öllu leyti, hvenær sem er. Við leitumst við að tilkynna það með hæfilegum fyrirvara þegar því verður við komið, en erum ekki skuldbundin til þess.

10.4. Notendur og stofnanir ættu því ekki að gera notkun þjónustunnar að forsendu fyrir verkefnum sem mega ekki stöðvast. Þau bera sjálf ábyrgð á að hafa aðrar leiðir til þýðinga tiltækar.

11. Takmörkun ábyrgðar

11.1. Þjónustan er veitt án endurgjalds og eins og hún er, sbr. 10. gr. Notkun hennar er á ábyrgð notanda og stofnunar.

11.2. Andvari ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til notkunar þjónustunnar eða þess að ekki er unnt að nota hana. Það á jafnt við um beint og óbeint tjón, þ.m.t. rekstrartjón, gagnatap, glataðan hagnað, tjón vegna efnis sem notendur senda inn, tjón sem rekja má til villna í þýðingum og tjón vegna þess að þjónustan er ekki tiltæk, er rofin, breytist eða hætt er að veita hana.

11.3. Takmarkanir í þessari grein gilda ekki um tjón sem Andvari veldur af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Þær takmarka heldur ekki ábyrgð sem ekki má takmarka samkvæmt lögum, þ.m.t. lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

12. Uppsögn

12.1. Notandi getur hætt að nota þjónustuna hvenær sem er. Hann getur eytt notandaaðgangi sínum sjálfur í þjónustunni, eða óskað eftir því með tölvupósti á tryggvi@andvari.is. Þá er öllum skjölum hans sem enn eru vistuð eytt um leið.

12.2. Við getum hætt að veita þjónustuna eða lokað aðgangi notanda eða stofnunar hvenær sem er, sbr. 10.3. Við leitumst við að gefa hæfilegan fyrirvara, nema um brot á skilmálum eða öryggisástæður sé að ræða. Hætti þjónustan er öllum vistuðum skjölum eytt samkvæmt 8. gr.

13. Breytingar á skilmálum

13.1. Við kunnum að breyta skilmálum þessum. Breytingar tilkynnum við í þjónustunni.

13.2. Þegar skilmálum er breytt er notandi beðinn um að samþykkja breytta skilmála næst þegar hann skráir sig inn eða notar þjónustuna. Hann getur ekki notað þjónustuna áfram nema hann samþykki þá.

13.3. Gildandi útgáfa er ávallt aðgengileg á babel.is, með gildistökudegi. Notandi getur vistað hana og prentað út. Eldri útgáfur eru afhentar sé þess óskað.

14. Lög og varnarþing

14.1. Um skilmála þessa gilda íslensk lög.

14.2. Rísi ágreiningur um skilmálana skulu aðilar leitast við að leysa hann með samkomulagi. Takist það ekki má reka mál vegna hans fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

15. Upplýsingar um þjónustuveitanda

HeitiAndvari
Kennitala670625-0950
HeimilisfangLaugavegi 182, 105 Reykjavík
Netfangtryggvi@andvari.is
VirðisaukaskattsnúmerÁ ekki við (ekki á virðisaukaskattsskrá)
Rekstrarform og skráningSjálfseignarstofnun með staðfesta skipulagsskrá, skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins